Heim arrow Nmskei arrow Kennaranámskeið
Kennaranámskeið PDF Print Senda

Námskeið fyrir þá sem hafa áhuga á að verða ungbarnasundkennarar var haldið 9.-11.febrúar 2024 og er áætlað aftur 2027. Áhugasamir geta haft samband við Erlu formann Busla (sjá upplýsingar fyrir neðan).

Ungbarnasundkennaranámskeið 2024


Busli félag ungbarnasundkennara á Íslandi stendur fyrir námskeiði um ungbarnasund fyrir leiðbeinendur á 3 ára fresti. Námskeiðið byggist á 20 tíma bóklegu námskeiði auk a.m.k. 10 tíma verklegri þjálfun í kjölfarið hjá reyndum ungbarnasundkennara.

Til þess að geta skráð sig á námskeið þarf viðkomandi að vera íþróttafræðingur, íþróttakennari, sjúkraþjálfari, þroskaþjálfi eða hafa aðra sambærilega menntun. Áhugasömum og þeim sem vilja skrá sig er bent á að hafa samband við Erlu Guðmundsdóttur, ritara Busla í gegnum tölvupóst: etta netfang er vari gegn sjlfvirkum spam forritum, verur a leyfa Javascript vafranum num til a sj a.


Námskeiðið er 3 dagar, föstudagur-sunnudags og þar verður m.a. farið yfir eftirfarandi atriði:

  • Tilgangur og markmið
  • Umgjörð námskeiða
  • Kennslufræði
  • Þroski og þroskaferill barns
  • Læknisfræðilegir þættir
  • Skyndihjálp
  • Rannsóknir
  • Verklegar æfingar í sundi
  • Samantekt og námskeiðsmat