|
Fjölnir óskar eftir ungbarnasundkennara |
|
Ungbarnasundkennari óskast! |
|
Nánar...
|
|
|
Námskeiđ fyrir ungbarnasundkennara |
|
Ungbarnasundkennaranámskeið 2011 Helgina 25.-27. febrúar n.k. mun Busli félag ungbarnasundkennara á Íslandi standa fyrir námskeiði um ungbarnasund fyrir leiðbeinendur. Námskeiðið byggist á 20 tíma námskeiði auk 10 tíma verklegri þjálfun í kjölfarið hjá reyndum ungbarnasundkennara. Tímasetning: Föstudagurinn 25.feb frá kl 12.30-19 Laugardagurinn 26.feb frá 9-17.00 Sunnudagurinn 27.feb frá 10-14.30 Til þess að geta skráð sig á námskeið þarf viðkomandi að vera íþróttafræðingur, íþróttakennari, sjúkraþjálfari, þroskaþjálfi eða hafa aðra sambærilega menntun. Áhugasömum og þeim sem vilja skrá sig er bent á að hafa samband við Erlu Guðmundsdóttur, ritara Busla í gegnum tölvupóst:
Ţetta netfang er variđ gegn sjálfvirkum spam forritum, ţú verđur ađ leyfa Javascript í vafranum ţínum til ađ sjá ţađ.
Þátttökugjald: 59.000 þúsund krónur. Innifalið: Námskeiðið, kennsluefni (bók og glærur), 10 stunda verklegir tímar hjá reyndum leiðbeinanda, hádegismatur laugardag og kaffi/létt snarl fjórum sinnum.
Innihald námskeiðs: - Tilgangur og markmið
- Umgjörð námskeiða
- Kennslufræði
- Þroski og þroskaferill barns
- Læknisfræðilegir þættir
- Skyndihjálp
- Rannsóknir
- Verklegar æfingar í sundi
- Samantekt og námskeiðsmat
|
|
|